Selma Ósk
17.09.2006 16:14:41 / selmaosk

Nýtt og ferskt blogg um allt það sem koma skal:D

Í tilefni af því að ég er hef ekki verið sjáanlega í háa herrans tíð hef ég ákveðið að opna nýja síðu og láta þá sem ekki vita að ég er ekki flúin af landi brott (amk. ekki enþá) né dauð!

Sjá meira á www.soh.bloggar.is

See ya all  ;)

kv. Selman


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 22:53:04 / selmaosk

Allir að kjósa hana elsku Huldu mína..... er svo frábær manneskja að ÖLLU leyti!!!!!

Jæja.... gott fólk.... nú er hún elsku Hulda mín að keppa í ungfrú Reykjavík og langar mig að biðja alla sem koma inná þessa síðu að kjósa hana, því að hún er ekki aðeins ótrúlega faaaaaaaaaallleg, heldur einnig ótrúlega góð manneskja og mikið yndi og langar mér því að biðja ykkur um að styðja við bakið á henni og kjósa hana 1x á dag alla daga fram að keppni ...... HÚN Á ÞAÐ SKO SKILIÐ:D 

kjósum Huldu :
http://www.ungfruisland.is/girls.php?idg=188&id=18&lang=is

Með fyrirfram þökk

~Selma Ósk~


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 23:21:51 / selmaosk

Í skýjunum.....:D

Hvar á ég að byrja………………………….?

Váááá ég er svo hissa…. Ég trúi þessu varla enþá….. en ég held samt að eg sé farin að meðtaka þetta aðeins betur núna…… ákvað að gera hér eitt bjútíblog fyrir æsta aðdáendur (Pálu sérstaklega:P) hhihihi…… þetta er svo skritið allt…. Eg er eflaust búin segja það svona 1000 sinnum við sjálfa mig hvað þetta er allt skritið en samt tönnslast ég alltaf aftur og aftur á því….. finnst eins og þetta hafi bara verið MJÖG GÓÐUR DRAUMUR:D

 

~Dagurinn fyrir keppni, æðislegt veður~

 

 

En já fyrir þá sem ekki eru að fatta hvað ég er að tala um hérna þá var ég víst krýnd Ungfrú Norðurland 2006 núna 18. mars sl. sem kom svona skemmtilega á óvart…..

Ég var búin að skemmta mér svona rosalega vel bara á kvöldinu/sýningunni sjálfri og hefði bara verið mjög sátt við að fara heim án þess að fá nokkra tilnefningu eða neitt….. Var bara svo gaman hjá okkur stelpunum mikið hlegið og mikill æsingur, mikil fegurð og glæsileiki og enginn datt nema að það leið yfir greyið Mörtu þegar krýningin var…. þannig að ég var bara alsæl með kvöldið eða það sem af því var búið………. Er líka bara svo ánægð að hafa fengið að kynnast þessum frábæru stelpum og eiga núna vinkonur hérna fyrir norðan og að hafa fengið að fara í þessa óvissuferð….. Kvöldið sjálft og óvissuferðin munu pottþétt flokkast undir einn af bestu dögum lífs míns………

 

~Krýningin, ekkert smá hissa á þessu öllu~

 

Svo var byrjað að veita tilnefningar og ég alveg að tapa mér í fagnaðarlátum þegar stelpurnar voru kallaðar upp hver á eftir annarri og svo þegar ég var kölluð 2x í röð fór ég nú bara að hlægja og vissi ekkert hvernig ég átti að haga mér og svo komu fleiri (man ekki alveg röðina á þessu) og ég var bara farin að hallast að því að þetta væri eitthvert allsherjar grín……… vorum ekkert búnar að æfa ef að við fengjum eitthvað þannig að ég hló nú bara og varð alltaf meira og meira hissa……. En mest var ég nú hlessa með 1. sætið ef ég á að segja eins og er…… sérstaklega þar sem að jaaa ég kannski bara hafði ekki alveg leyft mér einu sinni að vona smá…… svo bara já.. gerðist þetta….. æææ ég er eitthvað ótrúlega ánægð en ótrúlega hissa… eginlega er ég bara í skýjunum yfir þessu öllu:D

 

 

~Nýbúið að krýna og strax dregin í myndatöku, alsæl í blómahafi~

 

En svona finnst að ég er að skrifa svona “bjútípistil” þá má ég nú alveg til með að þakka öllum þeim sem studdu mig…….því að þetta var nú alveg meira en að segja það að taka þátt í þessu…… Takk, takk, takk,:*:*:* allir!!!!!!! Fjölskyldan mín, elsku Siggi minn, Miss north stelpurnar mínar, og Ghettopiurnar mínar og Sibba og Hólma og Siggi….. TAKK og allir sem gerðu mig svona glæsilega á kvöldinu og undirbúningnum (Birna hárgreiðslukona og Medulla starfsfólk, Sveindís og stelpurnar á Vita Liberata og Inga Berglind naglasnyrtir, Jónína Sverris saumakona) og bara allir fyrir  að vera svona YNDISLEG og takk fyrir þessar faaaaaaaaaaallllllegu gjafir og bara allir sem KUSU mig…… bjóst ekki við þessu TAKKKKKKKKK…… og bara allir TAKK FYRIR AÐ VERA TIL…… á aldrei eftir að gleyma þessu bara vegna þess hversu frábæru fólki ég hef kynnst hérna í gegnum þetta….

 

 

~Arnar Laufdal, ég og Elín Gestsdóttir~

Eflaust fullt sem ég er að gleyma en bara ákvað að láta þetta gott heita í bili því að maður þarf nú bara að einbeita sér að skólanum núna….. bara læra og læra og læra……. Og vinna og já eitt takk elsku dúllurnar mínar í félagsmiðstöðinni með gærdaginn ekkert smá sætt af ykkur:* þið eruð æði…..

 

Fékk þessar myndir lánaðar frá ungfruisland.is en þau fengu þær víst hjá Heiðu...... þannig að takk fyrir lánið Heiða... og svo bara allir að fylgjast með á Heiða.is eftir fleiri myndum þegar þær koma....

 

Enda þetta á úrslitum keppninnar á laugardeginum J 

 

~Hildur Hauksdóttir, ég, Lísbet Hannesdóttir og Pála Dröfn Sigurðardóttir~

Úrslit fegurðarsamkeppni Norðurlands 2006

Fegurðardrottning Norðulands 2006: Selma Ósk Höskuldsdóttir

Annað sæti: Hildur Hauksdóttir

Þriðja sæti: Lísbet Hannesdóttir

Fjórða sæti: Pála Dröfn Sigurðardóttir

Netstúlka sjallans.is: SelmaÓsk Höskuldsdóttir

RYK-design stúlkan: Selma Ósk Höskuldsdóttir

Ljósmynda fyrirsæta: SelmaÓsk Höskuldsdóttir

Icelandic beauty naglamódel: SelmaÓsk Höskuldsdóttir

Sportstúlka Sportvers: Lísbet Hannesdóttir

Vinsælasta stúlkan: Lilja Hólm Jóhannsdóttir

Perfekt stúlkan: Lilja Hólm Jóhannsdóttir

Magic tan stúlkan: Björk Nóadóttir

Eva Hildur Magnúsdóttir: vann styrk frá Sparisjóði Norðlendinga

Takk elskurnar mínar í Ungfrú Norðurland 2006 fyrir að vera svona mikil yndi…  þið vitið ekki hvað þið hafið glatt mitt litla hjarta mikið:D

p.s. eigum við ekki að reyna að geraeitthvað saman bráðum?

 

 

 

 

Endilega allir að kvitta;)

 Ykkar Selma Ósk 


» 24 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 18:21:29 / selmaosk

Ætli mar verði ekki að taka þessari áskorun frá henni $ultu....

Fjögur störf sem ég hef unnið....

  • Ísbúðin Álfheimum, með Söndru og Huldu sem var ekkert nema snilld
  • Hitt Húsið...
  • Zara.... frábær vinnustaður=)
  • Félagsmiðstöðin Oddeyraskóla

Fjórir staðir sem ég hef búið á...

  • Réttarsel 7 
  • Engjasel 87 og 77
  • Grjótasel 13
  • Tjarnalundur 16

svo einhverntímann í framtíðinni verður það 109 seljahverfi again;)

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla...

  • One Tree HiLL!
  • C.S.I.
  • O.C að sjálfsögðu..
  • House

Fjórir staðir sem ég hef farið til...

  • England.... alltof stutt ferð
  • MaLLorCa.... stelpufjör
  • Króatía..... bara æðislegur staður
  • Feneyjar...... Draumi líkast

Fjórar vefsíður sem ég skoða daglega...

 Fjórar uppáhalds matartegundir...

  • PIZZA ÓJÁ
  • Jólamaturinn, helst alladaga og að sjálfsögðu verða að vera brúnaðar kartöflur með
  • Kökur, og allskonar bakarísdót
  • Nammi og ís.... ætla að leyfa mér að flokka það sem mat þar sem að ég gæti (og geri alveg aðeins of mikið af) alveg lifað á:P

Fjórir geisladiskar sem ég get ekki verið án...

  • Hmmmm....
  • Sko..... 
  • þarna....
  • hlusta eginlega ekkert á geisladiska.... bara ipod....

Fjórir sem ég ætla að klukka...

  • Grýlu 
  • Leppalúða
  • Kengúru í Ástralíu
  • The Boys ....

og að lokum, nennið þið plís gefa mér ráð við kvefveiki:( er að verða cazy á þessu.... lov jú


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 13:02:11 / selmaosk

Valentínusardagurinn.....

Hver átti rómntískan dag/ kvöld í gær??? ég átti allvega eitt stk. svoleiðis....... ekkert smá í skýjunum...... Var búin að steingleyma því að Valentínusardagurinn væri (í gær semsagt) og var bara eikkað í skólanum og ræktinni, fór svo í prufu í magig tan (og er alveg þokkalega brún núna mar)og var þar alveg í til 21-21:30..... svo kom mín heim og var þá Siggi ekki svona sætur og var bara búinn að elda þennan dýrindis mat og svo lá rós oná disknum mínum og svo voru kerti og bara ótrúlega rómantískt... ekkert smá sætt og ég hafði ekki einu sinni munað eftir því að það væri þessi tiltekni dagur fyrr en stelpurnar voru eikkað að tala um þetta uppá snyrtstofu...... vá ég reiknaði svo ekki með því að koma heim og sjá allt þetta..... enda tókst honum sko að koma mér skemmtilega á óvart.... er eginlega bara enþá í skýjunum..... finnst þetta ekkert smá sætt þegar strákar gera sona fyrir mann...... Annars er nú ekki mikið að frétta nema að ég kem eflaust ekki í bæinn fyrr en á laugardagsmorgni því að það er búið að færa tískusýninguna yfir á föstudagskvöldið..... en ætla ekki að hafa þetta lengra hlakka til að reyna að hitta á ykkur píurnar mínar um helgina:* ~Selman~

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 13:07:45 / selmaosk

Einn dans við mig.....

Ja held að það sé nu alveg kominn tími á færslu:P hehe ekki alveg að standa mig eins og ég ætlaði mér að gera..... en eins og venjulega þá gerist afskaplega fátt hjá mér á meðan ég er ekki í Rvk...... afskaplega spennó allt......  er núna í einhverju glötuðu hádegishléi.... sem mér finnst ekki töff þar sem að ég er einfaldlega bara að bíða eftir því að þessi skóladagur endi...... er komin með skólaleiða strax og finnst það sko ekki töff:whut:........

Nokkrir punktar um allt og ekki neitt:

  • Ég er ekki morgun hress:S
  • Ég dökkhærð
  • Ég er ekki að fíla skólann núna:frown:
  • Ég hata að eiga aldrei pening:frown:
  • Ég þoli ekki að vinna svona fáa tíma í einu sem splitta deginum algerlega:S
  • Ég elska samt vinnuna mína af því að þetta eru svo frábærir krakkar:haha:
  • Ég er ekki að fíla það hvað ég er með litla vinnu:(
  • Ég fíla Sigga:haha:... veit ekki hvar ég væri án hans....:haha::haha::haha:
  • Ég fíla Ghettopiur (www.blog.central.is/ghettopiur):haha::haha::haha:
  • Ég fíla það það illa að geta ekki hitt Ghettopiur hvenær sem mig langar:cry:
  • Mér finnst ógeðslega ljótt þegar fólk baktalar :frown:
  • Það fólk á bágt......:|
  • Ég elska fólk sem er lífsglatt og elskar að hlæja a.k.a. Ghettopiur:haha:
  • Ég elska það þegar fólk er einlægt:)
  • Ég er ekki eins góð á háum hælum og ég var....:S
  • Ég fíla það illa.....
  • Mig langar að komst til Indlands svo að ég geti hitt hana Heiðu mína:|
  • Ég elska að kynnast nýju fólki:haha:
  • Sérstaklega á akureyri þar sem að ég þekki engann:( eða þúst nánast engann....
  • Ég er með á heilanum að finnast eitthvað töff eður ei......
  • Ég fíla illa heimanám
  • Ég vildi óska þess að Akureyri væri bara í Kópavogi....
  • Þá væri allt svo miklu léttara og skemmtilegra.....
  • Ég er ótrúlega hamingjusöm núna:haha::haha::haha:
  • Þrátt fyrir einstaka morgunóhressleika útí skólann:lol:
  • Ég vildi að maður gæti grennst á því að borða óhollan mat og sælgæti:lol:
  • Afhverju er enginn búinn að finna það upp enþá???
  • Ég elska Pepsi Max en er samt líka að fíla Coka Cola Light núna uppá síðkastið???
  • Ég elska fjölskylduna mína, þau eru frábær:*
  • Ég veit ekki enþá afhverju ég var svona pirruð alltaf útí hana fyrir 2 vikum???
  • Því jú þau eru frábær:haha:
  • En það var eflaust bara vegna söknuðar í ghettopiurnar mínar:cry:
  • og Sigga.... sem var fastur í rvk.....
  • Það er alveg merkilegt hvað tíminn getur liðið þegar mar er bara eikkað að bulla....
  • Hádegishléið að verða búið?? sheee
  • Ég elska að horfa á handbolta
  • Mér finnst það samt ekki töff þegar ísl. landsliðið tapar:(
  • Ég elska það að vera ástfangin:haha:
  • Ég get ekkið beðið eftir því að sumarið komi
  • Enda er það minn tími:haha::haha::haha:
  • Minn tími mun koma......:lol:
  • Ég elska þegar fólk kemur mér á óvart...
  • Ég held að ég ætti að hætta núna.......
  • Eflaust enginn sem mun lesa þetta hvort eð er:lol:
  • og ef einhver hefur byrjað á því er hann eflaust löngu hættur að lesa:lol:
  • Elska ykkur:*
  • Þið vitið hver ég er að meina píurnar ykkar ;)
  • og svo auðvita þið hin líka
  • Já þið......:haha:
  • Mússímússí....
  • Jæja endir á rugl færslu er hér....
  • Vonandi skemmtuð þið ykkur stórkostlega vel við þetta .... hehehe
  • þið fáið aldrei þessar mínútur aftur.... múhahahahaha......
  • Bless :haha:

~Selman~


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 19:50:24 / selmaosk

Mánudagur til mæðu....

Vá ég er búin að vera svo lasin í dag að það er ekki einu sinni fyndið...... vaknaði kl 5:30 í morgun með svona spúandi ælupest:(...... og ég veit alveg hvaðan ég smitaðist..... Gisti nebblega heima hjá Sveindísi á meðan ég var í Rvk. en þá var einmitt litla systir hennar með svona hressandi ælupest og höfðu hin 2yngri einnig fengið hana bara fyrr í vikunni þannig að ég mátti nú kannski reikna með þessu..... ég gerði það samt ekki.... því að ég smitast eginlega aldrei, ef eikkað slíkt er í gangi...... En þessi dagur er ekki búinn að vera uppá marga fiska, eða öllu heldur engann...... og fyrir utan það að þegar ég var hætt að æla og hélt að ég væri bara að verða góð þá bara varð ég svona fárveik/asnalega slöpp og með þessa þvílíku bakverki að ég hélt ég myndi bara gráta...... EKKI TÖFF að verða lasin..... og ég sem ætlaði að vera voða dugleg og mæta í ræktina svo að mar verði orðinn flottur fyrir útskrifitna!!!!! En neiiiii.....   en núna er ég búin að taka 1000 mg. af paratabs, enda eru verkirnir mun minni núna.....

En það sem stóð nú uppúr þessa helgina var klárlega Rvk. ferðin mín...... en ég fékk að þjóta með Helgu frænku og Gilla (takk fyrir það;))........ ferðin gekk nú ósköp vel fyrir utan það að gömul hjón höfðu lent útaf og að sjálfsögðu stoppar maður til að hjálpa fólki í neyð, sérstaklega í svona veðri og gekk aðstoðin bara ansi vel fyrir utan það að ég varð svona asskoti blaut af því að fara út og ýta (var náttlega þar sem mesti snjórinn var) að ég sat helminginn af leiðinni suður á nærunum með 2 flíspeysur og leðurjakka yfir mér:lol::lol:.......

Svo þegar mar var loksins kominn í bæinn var byrjað á því að fara í Smáralind  og of course verslað smá... og svo kom Hulda darling og sótti mig þangað og táraðist ég alveg úr hamingju við að hitta hana...... það er svo erfitt að vera sona langt og mikið frá ykkur elskurnar mínar.....  og svo var haldið heim til hennar...... ææææ vá þetta verður alltof löng færsla ef að ég ætla að segja frá öllu sona...... punktar hér

  • En Hulda færði mér þær skemmtilegu fregnir að hún sé að fara að taka þátt í Ungfrú Reykjavík;) Congrats my löve:*  þú átt eftir að rústa þessu
  • Og svo fékk mar líka að sjá her new boyfriend, en mér sýnist hann lofa góðu;) first impression skiptir mig miklu máli, og honum tókst alveg að heilla mig, sem góður kærasti fyrir vinkonu mína:haha:
  • Svo kom Sveindís ástin heim til hennar og var ánægjan ekki síðri við að hitta hana heldur en Huldu rétt á undan.....
  • Ég blaðraði við þau síðan eins og ég ætti lífið að leysa þar sem að ég hef ekki haft neinn til að tala við nema Sigga síðustu 3 mánuðina  og btw. hef ekki hitt stelpurnar mínar í 1/2 ár!!!!!!!!!!!!!!
  • og svo fórum ég og Sveindís og sóttum dótið mitt og beina leið til hennar....
  • Þar var mikið kjaftað og endað svo á dvd sem að við sofnuðum svo yfir
  • Daginn eftir (laugard.) fórum við svo í Kringluna og kjöftuðum dágóða stund á café Blue og kíktum svo aðeins í búðir....
  • Um kvöldið vorum við svo bara að dúlla okkur skelltum okkur í eitthvert  20. afmæli þar sem Siggi var....
  • DJ inn var góður en af einhverjum ástæðum var ég ekki að fíla mig þarna....
  • Þetta var Verslinga afmæli og var það alveg augljóst.....sérstakt andrúmsloft.....
  • Svo beiluðum ég og Sveindís og fórum heim til hennar þar sem ég klæddi mig í djammgallann
  • Svo var haldið niður í bæ þar sem að leiðin lá rakleiðis inná Nasa þar sem eitt mesta party bæjarins/ ársins var haldið
  • Þar voru held ég bara allir...... hef aldrei farið á Nasa þar sem að allt er basicly troðið enda ansi stórt place....
  • En þarna voru ja held ég bara allir..... Silvia Nótt, Unnur Birna, fullt af fótbolta strákum/köllum (veit ekki nógu mikið um fótbolta til að vita hvað þeir heita:P), fjölmiðla fólk og svo bara heill hellingur af svölu fólki
  • Sérstakar þakkir fá Gunnar Steinn og vinur hans (vinir Sveindísar) fyrir að hafa reddað okkur inn:haha::haha::haha:
  • Svo fær Siggi viðurnefnið "fullasti" (mest drukkni) maður kvöldsins..... en honum þótt sopinn ansi góður þetta kvöld enda frítt áfengi....
  • Hann komst ekkert áfram úr þessu afmæli heldur bara beint heim til sín, annað en flestir...... hahahaha.....
  • Svo hringdi hann svona 6 sinnum í mig til að láta mig vita að hann væri farinn heim..... ég held að ég hafi alveg verið búin að ná því í 6. skiptið :lol:
  • Ég og Sveindís og vinir dönsuðum svo næstum af okkur rassinn við þessa frábæru tónlist ....
  • Ég bara ekki skemmt mér svona vel LENGI.......Takk fyrir frábært djamm Sveindís mín;)
  • Svo var bara haldið heim á leið og komum ég og Sveindís við á Select (uppáhlds stað allra) og versluðum örugglega 2 kíló af sælgæti og átum það næstum allt á meðan við horfðum á dvd.... sem ég sofnaði útfrá......
  • svo vaknaði ég daginn eftir ekkert þunn (annað en sumir hóst Siggi hóst)og
  • Ákvað svo að klára restina af sælgætinu...... hehehe
  • Enda var ég með þvílíkt ógeð og langar sko ekki í nammi á næstunni.....
  • Svo var bara haldið heim á leið,sem var svosem ágætt..... en það var bara ekki gaman að koma síðan heim.....
  • Sakna ykkar alltof mikið elskurnar.... hefði helst aldrei viljað fara....
  • Held að ég láti þetta gott heita í bili ......

Lot´s of luve.....

~Selman~


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 16:59:19 / selmaosk

Spuning um að koma með eina nýja færlsu í tilefni nýs árs:D?

Já gleðilegt nýtt ár fólk gott ..... Ákvað að koma með eitt stk. færslu svona í tilefni nýs árs og ótrúlegs slappleika í blogginu seinustu mánuði ársins 2005:lol:

Skólinn byrjaður á ný og læti bara.... hugsa sér....maður bara loksins komin með seinustu stundatöfluna í hendurnar, ótrúlegt en satt:haha: og það sem er best við stundatöfluna mína eru 2 hlutir..... ég fékk ljósmyndaáfangann inní og svo eru föstudagarnir bara sweeeeeeeet en þá þarf ég bara að mæta í 1 stk. enskutíma kl 8:15 og þar af leiðandi búin kl 9:50..... sofi, sofi, sofi.... ég elska að sofa........

Annars gengur lífið bara sinn vanagang eða svona næstum því þegar manni hefur tekist að snúa sólahringnum við.... Ég og Siggi erum alveg ferleg í þeim málum... vökum á nóttunni og sofum á daginn.... ekki töff lengur þar sem að skólinn er byrjaður....  en já..... hef voða lítið annað að segja í bili.... jólafríið var bara 150% sweet og allir voða happy:haha::haha::haha: amk. ég:haha:

Enda þetta "skemmtilega" nýársblogg á mynd af mér og mínum kæru systkinum sem tekin var á aðfangadag.... verð svo að fara að henda inn nokkrum myndum sem að áttu að vera löngu komnar inná síðuna.......

~Selman~


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 03:41:20 / selmaosk

Senn koma jólin og meðfylgjandi pakkar:D

Vildi bara óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.....  Kossar og knús til allra sem eru í Rvk. þar sem að ég næ ekki að kissa og knúsa þau á aðfangadag:haha:

Lov ja!!!

~Ykkar Selma Ósk~


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2005 02:50:05 / selmaosk

Snilld:)

Já sæl öllu sömul...... eins og þið eflaust hafið tekið eftir þá er ég ekki alveg búin að vera að standa mig i blogginu en sona eridda:lol:

En akkurat nuna er ég í Rvk. að passa í augnablikinu og bíða eftir einni ljúffengri frá Dominos........ það á víst að vera eikkað surprise með sagði Siggi????  Ég hef eginlega ekki hugmynd um hvað það er eða jú....... sulta kemur sterklega til greina.....! hehehe...... en svona það sem stendur mest upp úr þessari ferð minni hingað í bæinn er 100% ræðukeppni VMA vs. Flensborg, þar sem VMA fór að sjálfsögðu með sigur á hólm:haha::haha: og þar létum við ekki kyrt við liggja, heldur var minn eini sanni Sigurður Amlín Magnússon valinn ræðumaður kvölsins:haha::haha::haha:......... congratilation baby;) en pizzan var að hringja bjöllunni svo ég kveð í bili....

 

~Selman~


» 16 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 18:00:59 / selmaosk

heheh.... soltið langt síðan síðast....

Halló fólks..... já ég veit alveg kominn dágóður tíma síðan ég bloggði eikkað síðast.... Ýmislegt hefur gerst á þessum tíma og mun það koma hér að neðan í punktum þar sem að ég nenni ekki að skrifa ýkja mikið núna!

Síðan síðast hefur þetta gerst!

  • Ég lærði smá:|
  • Mér tókst að týna símanum:S
  • og hafa hann týndan í heila viku 8|
  • og tókst svo að finna hann aftur:haha:
  • Svo öskraði ég gleði hróp þar sem að ég fann mína uppáhalds peysu og brjóstarhaldara sem höfðu verið týnd í heila 2 mánuði takk fyrir pent, og kenni ég alfarið búálfum og huldufólki um það!!!!
  • Ég náði inn hjá Hermundi Rósinkranz á létt 96.7 í vikunni og sagði hann mér ýmislegt spes, en byrjaði þó á að spyrja mig hvort að einhver Heiða væri náin mér, sem er náttlega rétt og sagði hann mér að segja henni að fara varlega og að hún ætti að hlusta betur??? Heiða hvað er það????? :$
  • Þórgnýr!!!!!!!!! Þetta virkar víst í gegnum síma!!!!!!!!!!!!! hann vissi einfaldlega of persónulega hluti til að geta giskað á það!:|
  • Svo svona fyrir ykkur sem ekki vita fékk ég mér líka eitt stk. kærasta að nafni Sigurður Amlín;)
  • ......og mér líkar það vel:haha:
  • ....held að ég geti líka alveg kennt honum smá um bloggleysið:lol:
  • Svo er ég líka búin að vera með eitthvert smá leiðinda kvef og fíla ég það illa:(
  • Ég hef átt afar erfitt með að fara að sofa fyrir klukkan 2 á næturnar og kenni ég Sigga alfarið um það!!!:frown::lol:

 

Svo eru það fréttir að sunnan...........

  • Davíð, Bjöggi og Bergur eru að koma í heimsókn norður næstu helgi og fíla ég það vel.... vantar algerlega ghetto fólk hingað norður í heimsókn
  • Stelpurnar hafa enn ekki komið í heimsókn.........:cry:
  • og ég hef enn ekki komist í heimsókn suður vegna fjárskorts:cry::cry: en mun vonandi bæta úr því þar næstu helgi:haha:

~Selman~


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 09:09:06 / selmaosk

Shetturinnn.......

Já ég sem ætlaði að vera svo van dugleg um helgina var alveg rosalega dugleg við að gera allt annað en að læra..........:S 

og að sjálfsögðu þar sem að ég ætlaði ekki að djamma þurfti Þórgnýr að hringja í mig og bjóða mér í party ....... og hver getur sagt nei við partyi þegar hann á að vera að læra ....party? læra? auðvita gat ég ekki neitað því svo maður skellti sér til Þórgnýs þar sem að gestgjafinn sjálfur fór algerlega á kostum ......  en svo endaði maður í sjallanum og var þar bara dansi,dansi og svete kete..... hitti fullt af skondnu fólki og svona.... það er nú bara eins og gengur og gerist en já svo fékk ég líkar ýmsar "skemmtilegar" spurningar sem tengjast grímu??????? fannst það nú bara vera no comment mál enda bara steypa þar á ferð...... en ég býð alltaf eftir því að Hulda svari áskorun minni á ghettopiur .....svo gó girl I am waiting..... ekki meira í bili.... tjá

~Selman~

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.10.2005 10:41:01 / selmaosk

Anderíanderiíííha!!!!

Já elskurnar mínar það er svona þetta blessaða líf........ æææ ég veit eginlega ekkert hvað ég á að segja við ykkur??? hmmm..... ætlaði að gera blogg á ghettopiu síðuna en það er víst ekki hægt á meðan ég er í skólanum þar sem að það er svo vangefið dæmið hérna.....

En já skellum okkur bara beint í slúðrið

Heyrst hefur að:

  • Sonja Berg (fyrir ykkur sem vitið hver hún er) er bara ófrísk takk fyrir pent!8|
  • Hulda sé orðinn minn faglegi ráðgjafi á msn í stelpumálum :lol:
  • ÉG sé orðinn að versta tossa hvað varðar námið:|
  • Ég sé ekki eini valdur þessa tossaskaps heldur félagsskapurinn sem ég sæki í :lol:;)
  • Abby sé búin að missa það og sé komin með nýtt blogg sem er abby.bloggari.com
  • Ég sé farin að sækja heldur betur í sveitina? já þið lásuð rétt......
  • Addi missi álit á konum þegar þær hegða sér eins ***** þrátt fyrir að hafa verið í þeim pakka fyrr í vor:lol:
  • Stelpurnar séu ekki að standa sig í heimsóknar pakkanum:frown:
  • Ég komi ekki suður í bráð.....:^)
  • Frasar eins og ææ en leiðinlegt, voðalega er það nú leiðinlegt, en leiðinlegt heyrist í eyrum mér svo oft á dag að ekki er hægt að halda tölu yfir það:lol::lol:
  • ÉG verði að fara að komast suður bara til þess eins að komast í klippingu!!! ja og að sjálfsögðu til að hitt ástirnar í lífi mínu:haha:
  • Ég hafi ekki farið á djammið þessa helgina og verið bara róleg:|:haha:
  • Sálfræði kennarinn minn eigi það til að gefa fokkjú í tíma og ótíma yfir bekkinn þegar hann er að telja hluti upp sem er ansi oft:lol::lol::lol:
  • Það sé komin ný skoðunarkönnum um besta brauðið:lol:
  • Ekki meira slúður í bili....

 

Já svo myndi ég gjarnan vilja vita hvernig þið mynduð túlka það ef að einhver segði við ykkur "ég er svo BUGAÐUR/BUGUÐ"......  finnst eikkað erfitt að skilja þá tilfinningu þegar þetta orð er notað plís give mí a komment on það????:lol:

Elskaykkuralladagaklukkanalltallanársinshringogallaraldir.........

~Selman~


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.10.2005 17:51:16 / selmaosk

Vellíðan hefur tekið völdin:D

Já ég verð nú bara að segja eins og er að líðan mín er í topp standi miðað við það hvert hún var á leiðinni eftir hundleiðinlegan september...... ja svona eridda:haha:

En ég er ekki í stuði til að skrifa þannig að ég ætla bara að punkta.....

  • Ég er búin að fara 3 sinnum á kaffihús á 5 dögum sökum þess að ekki er mikið um að gera í þessum bæ:lol:
  • Svo fór ég að sjá frekar spes mynd á þriðjudaginn sem heitir Stealth og ég veit satt að segja ekki hvort að ég geti mælt með henni..... samt ekkert leiðinlegt að hafa séð hana skiliðji...... bara svona mynd til að glápa á.....:|
  • Í gær var Hawaii kvöld í félagsmiðstöðinni og var sko bara hörku stuð enda, tók maður virkan þátt eins og alöru umsjónarmaður gerir og fór ég í limbó, húllaði og fór á trampólín ásamt því að hafa búið til áfengislausar bollur sem heldur betur slógu í gegn.... hafði sko ekki undan við að búa þær til :haha:
  • Mér finnst gaman að keyra í snjó8)
  • Svo er svolítið sem ég mun ekki tjá mig um núna ;)

Svo myndi ég garnar vilja heyra eitthvert slúður people???? endilega skellið einhverju fersku inní kommentin;) ... ja og verið dugleg að taka þátt í skoðunarkönnuninni

~Selman~


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 08:34:22 / selmaosk

Svete kete á laugardeginum!!!!

Váááá hvað er eginlega að mér segi ég nú bara..... 8| það er frí í skólanum í dag og þá, einmitt þá vaknaði ég af einhverri ástæðu bara kl.7:30.... hvað er eginlega að mér......? ég sem er alltaf svo þreytt og get aldrei vaknað snemma, vakna núna bara kl. 7:30 eins og ekkert sé???? pottþétt bara af því að nú mátti ég sofa út??? skrítni líkami???

En annað fyndið..... ég er að borða GULA VATNSMELÓNU...... 8| já gula vatsnmelónu en ekki gula hunangsmelónu eða rauða vatnsmelónu heldur gula vatnsmelónu..... mjög spes???? veit ekki afhverju hun er svona....... bragðast samt alveg eins og venjuleg vatnsmelóna..... :lol:hmmm...

En helgin var bara alveg skemmtileg sko reyndar var laugardagurinn helvíti skemmtilegur....;) Sjallinn sko alveg búinn að standa sig seinustu tvær helgar...... fyrst Todmobile sem voru svona þrusu góðir og svo núna Paul Óskar sem stendur ALLTAF fyrir sínu enda bara snillingur hér á ferð...... svo var Hr. Norðurland keppnin fyrr um kvöldið ;) og get ég bara sagt eitt um það að ég var sko ekki sammála dómnefnd:S...... ég hefði a.m.k. ekki sett einn gaurinn í sæti sem fékk sæti og hefði svo raðað aðeins öðruvísi í þau????? en förum ekki nánar útí það.... en já Palli stóð sko aldeilis fyrir sínu enda var bara dansað og dansað...... svete,svete......... hmmmm já...... veit eginlega ekki hvað ég á að segja meira ......  æææ við leyfum því bar að koma seinna ef það er eikkað sem ég er að gleyma......eða jú biturleiki helgarinnar var sko sannarleganöglin sem brotnaði:frown:..... hún brotnaði ekki bara smá svo ég gæti pússað hana til heldur alveg ofaní kviku takk fyrir:frown:..... ekki sátt,enda þýddi þetta bara eitt.... varð að klippa fallegu löngu,löngu! neglurnar mínar...... alveg niður:cry: held meira að segja að ég hafi aldrei náð þeim svona langt áður.......ja þá held ég að það sé bara komið.....  æææ ég er örugglega að gleyma einhverju...... þið látið mig þá bara vita ef að ég er að gleyma einhverju ........ nei held samt ekki? jæja nú er ég bara farin að tala í hringi......

En í dag ætla ég nú bara að reyna að læra eikkað í spæ. þar sem að ég á að fara í próf á morgun:S ekki alveg mitt uppáhald en svona er þetta..... svo er ég að fara í vinnuna í kvöld frá 19:30-22 að horfa á video:haha: þar sem að það er Video-kvöld í kvöld í Oddféló...... ja það er sko ekki leiðinlegt í vinnunni minni..... svo fyrir utan það hvað þessi krakkar eru frábærir:haha: já ég held ég geti bara sagt að ég hafi verið mjög heppin og fengið alveg frábærann hóp:haha:.......

En ég held ég láti þetta bara gott heita í bili.........  tjá8)

~Selman~


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7